Netheimur ehf.


24
Aug 11

Cintamani komið í þjónustu

Nú nýverið tók Netheimur yfir alla tækniþjónustu við Cintamani á Íslandi. Fyrirtækið rekur 4 verslanir í Reykjavík ásamt skrifstofu í Hafnarfirði. Þjónusta Netheims felst í hýsingu og rekstri á tölvukerfum Cintamani ásamt notendaþjónustu.

Vefsíða Cintamani www.cintamani.is


7
Aug 09

Netheimur bloggar

Nokkrir starfsmenn Netheims hafa trú á því að fyrirtækið og starfsmenn þess búi yfir þekkingu og skoðunum sem sé um að gera að miðla á netinu. Blogginu er haldið úti af starfsmönnum og endurspeglar því ekki sjónarmiðum Netheims. Hver póstur verður á ábyrgð þess sem hann skrifar.

Skrifað verður um allar hliðar tölvu, tækni og öryggismála, og í raun alls þess sem starfsmennirnir hafa áhuga á að skrifa hverju sinni. Gestir síðunnar hafa síðan fullan rétt á að setja inn skoðanir sínar við hverja færslu, spyrja okkur spurninga eða koma með ábendingar ef við á.